Fótbolti

Fengið yfir þúsund líflátshótanir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kaita fer huldu höfði þessa dagana.
Kaita fer huldu höfði þessa dagana.

Sani Kaita, miðjumaður Nígeríu, hefur fengið yfir 1.000 líflátshótanir síðan hann var rekinn af velli í tapinu gegn Grikkjum á HM. Þetta staðfesti fjölmiðlafulltrúi nígeríska knattspyrnusambandsins.

"Við tökum þessar hótanir mjög alvarlega. Við höfum rætt málið við ríkisstjórnina sem og FIFA," sagði talsmaðurinn en Nígería var yfir í leiknum þegar Kaita missti stjórn á skapi sínu og lét reka sig af velli. Eftir það náðu Grikkir stjórninni í leiknum og unnu.

"Þetta er alvarlegt mál. Þarna er ungur maður að gefa allt sitt fyrir landsliðið en er hótað. Liðsfélagar hans eru miður sín yfir þessum tíðindum. Við krefjumst þess að stjórnvöld veiti honum góða vernd," sagði talsmaðurinn og bætti við að Kaita væri í molum vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×