Loks hægt að nota greiðslukort í strætó 14. júní 2010 04:00 Framkvæmdastjóri Strætós segir að farmiðarnir séu svo mikið niðurgreiddir að ekki sé hægt að veita söluturnum nægilegan afslátt til að þeir sjái sér hag í að selja þá. Fréttablaðið/stefán
Strætó bs. stefnir á að bjóða farþegum sínum upp á að borga fyrir farið með almennum greiðslukortum í vetur, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins. „Við höfum unnið að því að leysa þetta verkefni tæknilega og vonum að þetta náist fyrir þann tíma,“ segir framkvæmdastjórinn, Reynir Jónsson. Spurður hvort kerfið byggist að einhverju leyti á Smartkortakerfinu, sem Strætó vann að í nokkur ár og kostaði fyrirtækið um 250 milljónir króna, segir Reynir að svo sé ekki. Smart-kerfið hafi verið lagt af 2007. Sá búnaður sé að miklu leyti úreltur og erfitt að fá varahluti í hann. Því hafi verið hugsað til næstu kynslóðar af tölvubúnaði. Hann sé að auki mun einfaldari í notkun. „Þetta er eins og posi fyrir debet- og kreditkort, en án upphringingar á staðnum,“ segir hann. Reynir rifjar upp að kvartað hafi verið undan því að vagnarnir gefi ekki til baka. „En Íslendingar nota helst ekki reiðufé. Þetta er kortaland og við höfum metið það svo að kæmum til móts við miklu stærri hóp með því að einblína á að taka við kortum.“ Sem stendur taka vagnstjórar einungis við miðum og tímabilskortum, svo sem Græna kortinu, eða reiðufé. Þá er hægt að kaupa miðaspjöld af vagnstjóra fyrir reiðufé. Síðustu áramót bættist svo við vefþjónusta, þar sem hægt er að kaupa miða og fá senda heim. Farmiða má einnig kaupa á sumum skiptistöðvum Strætós. En í miðbæ Reykjavíkur er hvergi hægt að fá miða nema á Hlemmi. Spurður hvers vegna ekki sé hægt að kaupa miða í almennum söluturnum eins og víðast erlendis, segir Reynir að heilt yfir greiði farþegar ekki nema 20 prósent af rekstrarkostnaðinum. Afganginn niðurgreiði sveitarfélögin. „Þannig að við höfum ekki svigrúm til að greiða mikla söluþóknun,“ segir hann. Söluturnar sjái sér því ekki hag í að selja miðana lengur. Þegar við bætist að flestir noti greiðslukort, þannig að söluturnar þurfi í raun að lána viðskiptavinum miðana, hafið það enn dregið úr vilja þeirra til að selja þá. „Jafnvel Ráðhús Reykjavíkur, stærsti eigandi Strætós, er hætt að selja miðana í smásölu vegna þessa,“ segir Reynir. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira