Hvít-Rússar slógu Ítali út í umspili fyrir EM 21 árs liða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. október 2010 17:24 Mario Balotelli gat ekki spilað með ítalska 21 árs liðinu vegna meiðsla. Mynd/AFP
Íslenska 21 árs landsliðið mætir ekki Ítölum á Evrópumótinu í Danmörku næsta sumar. Það kom í ljós í dag þegar Hvít-Rússar slógu Ítali út með 3-0 sigri í seinni umspilsleik þjóðanna. Spánn og Tékkland fóru hinsvegar örugglega áfram eftir örugga sigra á útivelli. Ítalir voru í ágætum málum eftir 2-0 sigur á Hvít-Rússum í fyrri leiknum á Ítalíu en eftir venjulegan leiktíma var staðan 2-0 fyrir Hvíta-Rússland og því þurfti að framlengja. Oleg Veretilo skoraði síðan þriðja mark Hvít-Rússa á sjöttu mínútu framlengingarinnar. Spánn vann 3-0 sigur í Króatíu og þar með 5-1 samanlagt. Mörk Spánverja í dag skoruðu þeir Álvaro Domínguez (Atlético Madrid), Adrián (Deportivo de La Coruña) og Jeffren (Barcelona). Tékkar unnu 2-0 sigur í Grikklandi og þar með 5-0 samanlagt. Sjö þjóðir (af átta) eru nú búnar að tryggja sér sæti á EM í Danmörku en auk gestgjafana og Íslendinga þá munu Svisslendingar, Englendingar, Hvít-Rússar, Spánverjar og Tékkar keppa í úrslitakeppninni sem fer fram í júní á næsta ári. Síðasti umspilsleikurinn stendur nú yfir en þar mætast Úkraína og Holland í Úkraínu. Úkraínumenn unnu fyrri leikinn 3-1 og það bendir því allt til þess að þeir verði áttunda liðið inn í keppnina. Það verður síðan dregið í tvo fjögurra liða riðla 9. nóvember í Álaborg í Danmörku.
Fótbolti Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Sjá meira