Raggi Bjarna rappar eins og brjálæðingur með Erpi 6. maí 2010 10:15 Raggi Bjarna bregður sér í nýtt hlutverk á væntanlegri plötu Erps Eyvindarsonar. „
Ég hélt að ég ætti að syngja þarna. Hann lét mig syngja smá og svo bara rappa. Þetta er ekkert Vorkvöld í Reykjavík, ég get alveg lofað þér því,“ segir stórsöngvarinn Ragnar Bjarnason. Erpur Eyvindarson vinnur nú að sinni fyrstu sólóplötu sem stefnt er á að verði gefin út í júní. Hann fékk einn ástsælasta söngvara þjóðarinnar, sjálfan Ragga Bjarna, til að rappa á plötunni, og segir að hann hafi staðið sig gríðarlega vel þegar á hólminn var komið. Fjölmargir gestir koma einnig fram á plötunni. Félagar Erps úr XXX Rottweiler, þeir Bent og Lúlli, koma báðir við sögu ásamt Emmsjé Gauta og fleiri þungavigtarmönnum úr íslenska hipphopp-heiminum. „Þetta var alveg stórkostlegt. Erpur er svo skemmtilegur, þetta er eldklár strákur. Ég hef aldrei gert þetta fyrr, ég rappa og rappa eins og brjálæðingur þarna,“ segir Raggi. „Hann henti mér beint út í djúpu – og lingóið, maður. Ég hef aldrei séð þetta fyrr. Erpur var að segja mér að hann gæti þýtt þetta svo að fólk gæti skilið. Þetta er nýtt mál sem þeir nota rappararnir.“ En hlustarðu mikið á rapptónlist? „Ég hef hlustað á Erp – ég hef alltaf haft gaman af þessum strák. Ég hef ekki hlustað á neina aðra.“ Raggi og Erpur kynntust fyrir nokkrum árum þegar sá fyrrnefndi fór í viðtal til þess síðarnefnda. Þeir hittust svo fyrir nokkrum mánuðum þegar Erpur var byrjaður að vinna að plötunni. „Hann spurði hvort ég væri til í að gera þetta. Ég hélt það nú,“ segir Raggi. „Svo hittumst við um daginn í Stapanum þar sem við vorum að skemmta fyrir Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hann sagði að það væri komið að þessu.“ Erpur þykir mikill strigakjaftur og samdi textann fyrir Ragga, en óttaðist Raggi ekki að hann færi yfir strikið? „Það er nú það, ég veit ekki hvað hann var að láta mig bulla – ég skildi þetta ekki. Nei, ég held ekki. Hann passar upp á mig, lætur mig ekki gera einhverja dellu!“ atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fleiri fréttir Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Sjá meira