Lífið

John Travolta á von á barni - ári eftir að sonurinn dó

Þessi mynd var tekin af hjónunum í lok mars.
Þessi mynd var tekin af hjónunum í lok mars.
Rétt um ári eftir að þau misstu 16 ára son sinn eiga leikarinn John Travolta og eiginkona hans, Kelly Preston, von á öðru barni. Hann er 56 ára og hún er 48 ára.

„Það er ekki hægt að þaga yfir leyndarmáli ... að minnsta kosti ekki svona yndislegu leyndarmáli," skrifaði Travolta á heimasíðu sína nú í vikunni. Skilaboðin má sjá hér á Travolta.com.

„Við viljum segja ykkur frá því að við eigum von á nýjum fjölskyldumeðlimi," bætti hann við en fjölmiðlar vestanhafs voru byrjaðir að spá óléttunni fyrir nokkru.

John og Kelly eiga fyrir tíu ára dóttur sem heitir Ella. Sonur þeirra, Jett, lést á Bahama-eyjum í fyrra eftir banvænt flogakast. Hann var með hinn sjaldgæfa Kawasaki-sjúkdóm sem leggst á börn og veldur bólgum.

Þannig að góðu óléttufréttirnar eru væntanlega kærkomnar. Þessa dagana fara fram réttarhöld yfir pari sem reyndi að kúga fé út úr Travolta eftir að sonurinn lést í fyrra. Þá dóu tveir hundar fjölskyldunnar í slysi á bandarískum flugvelli í síðustu viku.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.