Fótbolti

Coulibaly í hundakofanum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Coulibaly er áhugaverður dómari.
Coulibaly er áhugaverður dómari.

FIFA er búið að gefa út lista með því hverjir dæma næstu leiki á HM og er sérstaklega eftir því tekið að þar vantar nafn malíska dómarans, Koman Coulibaly, sem dæmdi af mark á óskiljanlegan hátt í leik Bandaríkjanna og Slóveníu.

Coulibaly átti annars stórleik í þessum leik og gaf Bandaríkjamanninum gult spjald fyrir að fá boltann í andlitið. Hann sá því ýmislegt í leiknum sem enginn annar sá eða reglan að dæma aldrei nema viss sé ekkert sérstaklega ofarlega á lista hjá honum.

FIFA hefur ekki gefið það út að Coulibaly hafi dæmt sinn síðasta leik á mótinu en hann er sem stendur í hundakofanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×