Fótbolti

Anelka sagt að halda kjafti

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Forráðamenn Chelsea hafa skipað framherjanum Nicolas Anelka að þegja um hvað gerðist í herbúðum franska liðsins þar til mótinu er lokið.

Anelka lenti eins og kunnugt er í rifrildi við landsliðsþjálfara Frakka, Raymond Domenech, og var í kjölfarið rekinn úr landsliðinu.

Anelka kom aftur til Englands í gær en hefur ekkert tjáð sig við blaðamenn.

Bróðir Anelka, Claude, hefur aftur á móti greint frá því að Chelsea hafi sett leikmanninn í þagnarbindindi.

Claude segir líka að Anelka vilji ekki valda meiri skaða innan hópsins og því hafi hann ekki áhuga á því að tjá sig meira um málið sem stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×