Allir bíða eftir niðurstöðunni úr myndatökunni af ökkla Rooney Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2010 09:30 Wayne Rooney liggur hér sárþjáður í gær. Mynd/AP
Stuðningsmenn Manchester United og enska landsliðsins bíða nú frétta af myndatökunni af ökkla Wayne Rooney sem meiddist á lokasekúndunni í 1-2 tapi á móti Bayern Munchen í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær. Wayne Rooney snéri sig illa á hægri ökkla og veifaði strax til sjúkraþjálfara liðsins. Hann hoppaði á öðrum fæti út af vellinum og yfirgaf síðan leikvanginn á hækjum. Rooney fór ekki með liðsrútunni upp á hótel heldur í sérbíl. Hann fer nú í myndatöku á næstu 36 tímum sem mun gefa læknum og sjúkraþjálfurum Manchester til kynna um hversu alvarlega þessi ökklameiðsli eru í raun. Fyrirsagnir ensku blaðanna í morgun snérust aðallega um stöðuna á Rooney en úrslit leiksins voru í bakgrunni. "Versta martröð Englendinga", "Náðu þér sem fyrst" og "Biðjum saman" eru dæmi af fyrirsögnum um áhyggjur blaðanna af meiðslum Rooney. „Hann hefur augljóslega tognað á ökkla en það er of snemmt að álykta eitthvað um þetta. Ég tel þó ekki að þetta sé mjög alvarlegt," sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United strax eftir leikinn. Það er mikil spenna í herbúðum United vegna þessa þar sem framundan er toppslagur í ensku úrvalsdeildinni á móti Chelsea næsta laugardag og þá er innan við vika í seinni leikinn á móti Bayern Munchen.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Sport Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira