Páll Óskar og Faxarnir styrkja fötluð börn 9. maí 2010 15:15 Faxarnir hafa sent frá sér lagið Ljós í myrkri. Þeir sem vilja kaupa lagið og styrkja gott málefni geta farið inn á ljosimyrkri.blog.is.
Hljómsveitin Faxarnir sendi nýlega frá sér lagið Ljós í myrkri. Lagið er flutt af Páli Óskari og tileinkað Fanneyju Eddu, sem lést 13. apríl, aðeins þriggja ára að aldri. „Ég horfði á Ísland í dag í mars sem fjallaði um baráttu stelpunnar þegar hún var á lífi. Þá kom textinn. Það tók smá tíma að semja hann – það var erfitt,“ segir Vignir Örn Guðnason, gítarleikari hljómsveitarinnar Faxarnir. Faxarnir hafa sent frá sér lagið Ljós í myrkri, en það var upphaflega samið til styrktar langveikri stúlku, sem hét Fanney Edda Frímannsdóttir. Hún lést 13. apríl, skömmu eftir að lagið var klárt til flutnings, aðeins þriggja ára að aldri. Fanney Edda var haldin óskilgreindum taugahrörnunarsjúkdómi. Foreldrar hennar eru bæði flugmenn hjá Flugfélagi Íslands. Þá er hljómsveitin öll skipuð flugmönnum hjá sama flugfélagi. Páll Óskar Hjálmtýsson flytur lagið af sinni alkunnu snilld, en Vignir segir að hann hafi verið kominn inn í hljóðverið daginn eftir að þeir höfðu samband við hann. „Okkur datt í hug að tala við Pál Óskar,“ segir hann. „Þó að við séum með góðan söngvara, þá fannst okkur hann vera stórt númer og henta vel fyrir lagið.“ Lagið er væntanlegt til landsins á geisladiski í næstu viku, en hægt er að fara á vefsíðuna ljosimyrkri.blog.is til að panta disk og þar með styrkja verkefnið. Lagið er einnig fáanlegt á Tónlist.is. Ágóði af sölu lagsins og plötunnar rennur til Lyngáss og einnig í styrktarsjóð Fanneyjar Eddu. Lyngás er sérhæfð dagþjónusta fyrir fötluð börn og unglinga, rekin af Ási styrktarfélagi, en þar dvaldi Fanney Edda. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Við erum öll nóg“ Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið Fleiri fréttir Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Sjá meira