Draugagangur á Bessastöðum 9. maí 2010 15:00 Rithöfundurinn Gerður Kristný semur söngleikinn upp úr barnabókum sínum. „
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri hafði samband og bað mig um að semja söngleik. Ég sló bara til," segir rithöfundurinn Gerður Kristný sem er að semja söngleik upp úr hinum vinsælu barnabókum sínum, Ballið á Bessastöðum og Prinsessan á Bessastöðum. Frumsýning verður á stóra sviðinu í janúar. Bragi Valdimar, Baggalútur, semur tónlistina og leikstjóri verður Ágústa Skúladóttir. „Þetta er mjög skemmtilegt," segir Gerður, sem er að semja sinn fyrsta söngleik. Tíu ár eru aftur á móti liðin síðan hún samdi sitt fyrsta og eina leikrit, einleikinn Bannað að blóta í brúðarkjól. „Leikrit er auðvitað allt öðruvísi en skáldsaga og nú þarf ég að athuga hvaða atburði úr bókunum er skemmtilegt að sjá leikna á sviði," segir hún og bætir við að leikstjórinn Ágústa sé sprellsöm kona. „Ég get látið hana hafa 5 sentimetra af hugmynd og hún teygir þá upp í 27 sentimetra." Söngleikurinn nefnist Draugurinn á Bessastöðum. „Draugurinn hleypir smá spennu í atburðarásina. Annars koma sömu persónur við sögu og í bókunum. Forsetinn, prinsessan, gröfustjórarnir, landnámshænan og svo auðvitað ritararnir þrír. Ég hlakka sérstaklega til að sjá þá á sviði." Jóhannes Haukur Jóhannesson mun leika forsetann og Þórunn Arna Kristjánsdóttir, sem er nýútskrifuð úr leiklistarskólanum, leikur prinsessuna. Gerður hefur setið við skriftir undanfarna mánuði og hlakkar mikið til að sjá útkomuna. „Það á að fara að leiklesa von bráðar. Svo verða þetta fálkaorður og fjör eins og er í bókunum." - fb
Mest lesið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Sjá meira