Yfirlitssýning Hafsteins Austmann 9. maí 2010 14:45 Hafsteinn Austmann fagnar sjötíu og fimm ára afmæli með stórri yfirlitssýningu í Gerðarsafni.
Í gær var opnuð sýning í Gerðarsafni á verkum frá löngum ferli Hafsteins Austmann en hann fagnar með sýningunni 75 ára afmæli. Á sýningunni má rekja feril Hafsteins allar götur frá því að hann sat kornungur við fótskör meistara franska skólans á sjötta áratug síðustu aldar. Hafsteinn Austmann hefur fyrir löngu skapað sér nafn sem einn af vönduðustu listmálurum sinnar kynslóðar. Hann er fæddur á Vopnafirði 1934, en ólst að mestu upp í Reykjavík. Kornungur ákvað Hafsteinn að helga sig myndlistinni og eftir nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík og Handíða- og myndlistarskóla Íslands dvaldi hann í París 1954-55 og sótti þá tíma í Académie de la Grande Chaumière, meðal annars hjá myndhöggvaranum Zadkine. Námsdvöl hans í París á þeim árum þegar franski skólinn var mikilsvirtur í öllum hinum vestræna heimi setti mark sitt á feril hans. Hafsteinn heillaðist snemma af franskri abstraktlist og var meðal annars boðið að sýna á hinni alþjóðlegu Réalités Nouvelles-sýningu, aðeins tvítugum að aldri. Heimkominn tók Hafsteinn þátt í öllum helstu sýningum íslenskra myndlistarmanna og skar sig ævinlega úr fyrir fágaðar abstraktmyndir sínar, bæði olíu- og vatnslitamyndir. Hann starfaði einnig við leikmyndagerð fyrir Leikfélag Reykjavíkur en hefur að mestu helgað líf sitt málverkinu, bæði olíu- og ekki síður vatnslitamyndum sem hann hefur sjaldgæf tök á, og svo höggmyndum. Til þessa hefur hann haldið um 30 einkasýningar og tekið þátt í miklum fjölda samsýninga um allan heim. Sömuleiðis er verk Hafsteins að finna í öllum helstu listasöfnum Norðurlanda. Verk hans hafa enn fremur hlotið ýmsar viðurkenningar, meðal annars alþjóðlegu Windsor & Newton-verðlaunin fyrir vatnslitamyndir. Hafsteinn hefur einnig hlotið tvenn verðlaun fyrir útilistaverk og gert veggmynd fyrir Borgarspítalann. Í tengslum við sýninguna verður gefin út vönduð bók „Kvika: Hafsteinn Austmann, Myndverk 1950-2010“, sem Aðalsteinn Ingólfsson hefur tekið saman. Sýningin er hluti af dagskrá Kópavogsdaga og mun standa til 20. júní. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Sjá meira