Fótbolti

Capello tilkynnir byrjunarliðið fyrr

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fabio Capello stýrir landsliðsæfingu í dag.
Fabio Capello stýrir landsliðsæfingu í dag. Nordic Photos / Getty Images

Samkvæmt heimildum fréttastofu Sky Sports ætlar Fabio Capello að breyta vinnubrögðum sínum fyrir leik Englands og Slóveníu á miðvikudag.

Capello hefur beðið fram á síðustu stundu með að tilkynna byrjunarlið enska landsliðsins í leikjum þess á HM til þessa. Báðum lyktaði með jafntefli og hefur Capello verið gagnrýndur fyrir sína starfshætti, meðal annars vegna þessa.

Samkvæmt fréttastofu Sky mun Capello hafa samþykkt að breyta þessu og tilkynna byrjunarliðið fyrr, til að leikmenn þurfi ekki að vera í óvissu svo skömmu fyrir leik.

Frammistaða þeirra ensku í leiknum gegn Alsír á föstudaginn þótti hræðileg og þurfa Englendingar nauðsynlega á sigri að halda á morgun til að komast áfram í 16-liða úrslit keppninnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×