Fótbolti

Torres kemur inn í byrjunarlið Spánar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Torres og Villa spila saman í kvöld.
Torres og Villa spila saman í kvöld.

Fernando Torres kemur af bekknum og verður í byrjunarliði Spánverja í kvöld er liðið mætir Hondúras í leik sem Spánn verður að vinna. Torres verður með David Villa í fremstu víglínu að því er spænska blaðið Marca segir.

Spánverjar hafa oftar en ekki kosið að spila aðeins með einn framherja. Á því verður breyting í kvöld og því fá bæði Villa og Torres að spila.

Hver víkur úr liðinu fyrir Torres er samt óljóst. Andrés Iniesta mun samt líklega ekki spila vegna meiðsla.

Jesus Navas kemur líklega einnig í byrjunarliðið í stað David Silva.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×