Gareth Barry með á æfingu enska landsliðsins í morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2010 10:30 Gareth Barry í Suður-Afríku með Liverpool-mönnunum Steven Gerrard og Jamie Carragher. Mynd/AFP
Það eru góðar fréttir af Gareth Barry, miðjumanni enska landsliðsins, eftir að hann tók þátt í æfingu enska landsliðsins í Suður-Afríku í morgun. Barry var valinn í HM-hópinn eftir að hafa staðist læknisskoðun á síðustu stundu. Gareth Barry meiddist á ökkla í leik með Manchester City á móti Tottenham 5. maí síðastliðinn og hefur síðan verið í kapphlaupi við tímann sem hann virðist nú hafa unnið. Æfingin í morgun tók bara fimmtán mínútur og álagið var því ekki mikið á Barry en það var engu að síður mikilvægt skref fyrir hann að vera með öðrum leikmönnum liðsins á æfingunni. Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur ekki farið leynt með mikilvægi Gareth Barry fyrir enska liðið en Barry hafði byrjað 19 af 22 leikjum undir stjórn Ítalans áður en hann meiddist. Markvörðurinn David James tók ekki þátt í æfingunni en Ledley King var með og þá aðstoðaði David Beckham einnig Capello á æfingunni. England spilar fyrsta leikinn sinn á HM á móti Bandaríkjunum 12. júní næstkomandi en Slóvenía og Alsír eru einnig með Englandi í riðli.
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Uppgjör: Ísland - Noregur 3-4 | Daufur endir á slöppu ævintýri Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Uppgjörið: Malisheva - Víkingur 0-1 | Fagleg frammistaða hjá Víkingum Fótbolti Valdi Ísland fram yfir Noreg: „Ég er meiri Íslendingur“ Fótbolti Síðasti séns á að vinna milljónir Fótbolti Uppgjörið: Valur - Flora 3-0 | Valsmenn í góðri stöðu Fótbolti Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Handbolti Fær ekki heimsmet sitt viðurkennt: „Þetta er kjánalegt“ Sport Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fleiri fréttir „Þegar við spilum svona þá uppskerum við yfirleitt“ Sveindís: Maður vinnur ekki leiki nema að skora mörk „Það var köld tuska í andlitið“ Dagný: Veit ekkert hvað ég er að fara að gera Uppgjörið: Valur - Flora 3-0 | Valsmenn í góðri stöðu Vill halda áfram: „Tel mig hafa getuna í það“ Einkunnir Íslands: Sveindís langbest Dramatískt jafntefli sendir heimakonur í átta liða úrslit Ítalskur deildarleikur í Ástralíu í febrúar? „Við erum að gera eitthvað rétt“ Þrjár breytingar: Katla fær stórt tækifæri í lokaleik Íslands á EM Uppgjörið: Malisheva - Víkingur 0-1 | Fagleg frammistaða hjá Víkingum Uppgjör: Ísland - Noregur 3-4 | Daufur endir á slöppu ævintýri Myndaveisla: Íslensk yfirtaka í Thun og vonast eftir fyrsta sigrinum Á góðum stað fyrir mikil átök Fjórir eru tveimur leikjum frá því að vinna sjö titla á einu ári Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Valdi Ísland fram yfir Noreg: „Ég er meiri Íslendingur“ EM í dag: Hungur í sigur, þreytandi vörður og næstum stærsta skúbb mótsins „Miklu skemmtilegra að vera í þessari baráttu“ Arsenal eflir miðjuna enn frekar Sex hafa ekkert spilað á EM Sjáðu strákana á N1 mótinu sýna snilli sína Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ajax riftir samningi Jordans Henderson Síðasti séns á að vinna milljónir Missum Hondúras upp fyrir okkur en höldum sama sæti á FIFA listanum Missir af leik á EM vegna höfuðmeiðsla Messi í stuði í nótt og nældi sér í enn eitt metið Algjörir yfirburðir PSG gegn Real Madrid Sjá meira