Þeir sem hafa ekki áhuga á HM verða að flytja upp í bústað 6. maí 2010 21:00 Sannkölluð veisla verður fyrir þá sem hafa áhuga á knattspyrnu og HM í þessari vinsælustu íþrótt heims. Töluverð riðlun verður í dagskrá Sjónvarpsins vegna mótsins, Kastljósið fer í frí og snýr ekki aftur fyrr en 25. júlí og sjónvarpsfréttir verða klukkan sex í stað sjö á kvöldin.
Þeir sem hafa engan áhuga á knattspyrnu, heimsmeistaramóti og frösum á borð við „glæsileg tilþrif" og „sjáið þetta!" ættu að flytja upp í sjónvarpslausan sumarbústað í júní. Því HM í Suður-Afríku mun nánast einoka sjónvarpsdagskrá RÚV í heilan mánuð. Sjónvarpið og Stöð 2 Sport 2 munu sýna beint frá öllum leikjum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem hefst formlega 11. júní. Stöð 2 Sport 2 sýnir alla leikina beint sem hefjast klukkan 11.30 og svo deila sjónvarpsstöðvarnar síðustu leikjunum í riðlakeppninni en þá er leikið á sama tíma. RÚV mun síðan sjá alfarið um að sýna beint frá útsláttarkeppninni og úrslitaleiknum sjálfum sem háður verður 11. júlí. Alls verða sextíu og fjórir leikir í beinni útsendingu á 25 leikdögum. Búast má við töluverðri röskun á dagskrá RÚV sem á sjónvarpsréttinn að HM. Sigmar Guðmundsson, ritstjóri Kastljóssins, upplýsir þannig að Kastljósið fari í frí um leið og HM hefst og snúi ekki aftur fyrr en 25. júlí, eða tveimur vikum eftir að HM lýkur. Kristín Harpa Hálfdanardóttir, yfirmaður íþróttadeildar RÚV, segir leikjatímann varla hafa getað verið betri. „Sjónvarpsfréttir verða klukkan sex í stað sjö og hefðbundin dagskrá hefst klukkan níu," segir Kristín en Sjónvarpið mun sýna beint frá leikjunum sem hefjast klukkan hálf þrjú og hálf sjö. Sjónvarpsfréttirnar verða því einnig í styttra lagi. Þorsteinn J. Vilhjálmsson verður áberandi í HM-umfjöllun sjónvarpsins. Hann verður með sérstakan upphitunarþátt korter yfir fimm á daginn þar sem farið verður ítarlega yfir hádegisleikinn og hann mætir svo aftur til leiks þegar síðasta viðureign dagsins er afstaðin. HM-æðinu lýkur því klukkan níu á kvöldin eftir að hafa staðið yfir, nánast samfleytt, frá því klukkan tvö. Sjónvarpið hefur verið að hita upp fyrir HM með kynningum á liðunum sem taka þátt en 18. maí hefst svo sérstök upphitun. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Fleiri fréttir Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Sjá meira