Forseti Eistlands bað um einkatónleika hjá Bedroom Community 11. júní 2010 07:00 Toomas forseti er hress og með fínan tónlistarsmekk. Hér er hann með Ólafi Ragnari forseta. „
Þetta var mjög sérstakt," segir Sturla Mio Þórisson, hljóðversstjóri í Gróðurhúsinu. Toomas Hendrik Ilves, forseti Eistlands, heimsótti hljóðverið á miðvikudagskvöld ásamt eiginkonu sinni Evelin og föruneyti sínu. Það samanstóð af 25 manna sendinefnd og hópi lífvarða. „Við höfum aldrei tekið á móti svona þjóðhöfðingja í stúdíóinu áður. Það var líka skrýtið að hafa þarna menn sem voru talandi ofan í ermina á sér," segir Sturla. Forsetinn, sem er staddur hér á landi í opinberri heimsókn, er mikill áhugamaður um tónlist og er sérlegur aðdáandi þeirra tónlistarmanna sem gefa út hjá Bedroom Community, sem hefur aðstöðu í Gróðurhúsinu. Hann missti af tónleikum sem Valgeir Sigurðsson, Daníel Bjarnason og Nico Muhly úr Bedroom Community héldu í Tallin í Eistlandi á dögunum og óskaði því eftir að komast á hálfgerða einkatónleika í Gróðurhúsinu. Þar spiluðu fyrir hann þeir Daníel Bjarnason og Ben Frost. „Hann virtist mjög sáttur. Það lofuðu þetta allir í hástert," segir Sturla um viðbrögð forsetans og föruneytisins. Eftir heimsóknina, sem stóð yfir í um eina og hálfa klukkustund, kíkti hluti sendinefndarinnar á Kaffibarinn en forsetahjónin létu það vera, enda orðin þreytt eftir langan og strangan dag.
Mest lesið Yngsti gusumeistari landsins Lífið Emma Watson svipt ökuleyfinu Lífið Íslensk hátíska úr fiskileðri slær í gegn í Vogue Tíska og hönnun Væri teiknimyndapersóna í fullkomnum heimi Tíska og hönnun „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ Lífið „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Lífið Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Sjarmerandi raðhús í 105 Lífið „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Lífið Fleiri fréttir Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Telur að 511 kílómetra hlaupið styrki hlauparann „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Ómissandi gönguleiðir sem þú verður að prófa Stjörnulífið: „Engar áhyggjur við erum ekki skilin“ Riddarar kærleikans í hringferð um landið Endaði á geðdeild eftir notkun MDMA í sálfræðimeðferð Reykvíkingur ársins tileinkar samstarfsfólki útnefninguna Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugar Klay Thompson og Megan Thee Stallion nýtt par Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Sjá meira