Svali: Ég hlýt að vera svona andfúll 11. maí 2010 04:00 Svali situr einn eftir í hljóðverinu eftir að þau Gassi og Sigga Lund hættu í morgunþættinum Zúúber. Fréttablaðið/Valli „
Ég hlýt að vera svona skelfilega erfiður í samstarfi, andfúll og geðstirður á morgnana," segir Sigvaldi Kaldalóns, dagskrárstjóri útvarpsstöðvarinnar FM 957 og eini liðsmaður morgunþáttarins vinsæla Zúúber. Sigga Lund og Gassi Ólafsson, samstarfsfólk Svala til sex ára, hafa bæði tilkynnt að þau séu hætt störfum og ætli að snúa sér að einhverju öðru, Sigga nú síðast í gær. Sigvaldi, oftast kallaður Svali, upplýsir að þau hafi áttað sig á því að þátturinn Zúúber væri búinn að syngja sitt síðasta og því hafi verið ákveðið að hætta með þáttinn. Sjálfur hyggst hann þó halda áfram að vakna með Íslendingum í útvarpinu. Og nú í nýjum þætti sem mun að öllum líkindum nefnast Svali og félagar og hefst 17. maí. Halla Vilhjálmsdóttir mætir til leiks í þættinum Svali og félagar. Svali hefur þegar fengið til liðs við sig þau Erp Eyvindarson og Höllu Vilhjálmsdóttur sem verða með vikuleg innslög í formi hrekkja eða annarra skemmtilegheita. Þá mun Jóhanna Vigfúsdóttir einnig verða fastur gestur í þessum nýja morgunþætti en með Svala í hljóðstofu verður Kristján Ingi Gunnarsson. Kristján er ekki ókunnur fjölmiðlaumhverfinu því hann var einn liðsmanna sjónvarpsþáttarins Ópsins ásamt þeim Ragnhildi Steinunni og Þóru Tómasdóttur. Í þennan her eiga síðan eftir að bætast fleiri. „Já, er ekki betra að hafa sem flesta í kringum sig þannig að áfallið verði minna þegar einhver hættir," segir Svali og hlær. - fgg
Mest lesið „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Tíska og hönnun Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Bíó og sjónvarp Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið Sonur Rögnu og Árna fæddur Lífið Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Lífið Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Lífið Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Bíó og sjónvarp Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lífið Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Lífið Fleiri fréttir Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Sjá meira