Tískuráð fyrir lögulegar konur slá í gegn á netinu 15. maí 2010 10:00 Hólmfríður segir tískublogg sitt vera hugsað til að gefa smá innsýn inn í tískuheim lögulegra kvenna en ekkert síður til að bæta ímynd þeirra og sjálfstraust. „
Ég hef unnið mikið í tískuvöruverslunum en svo eignaðist ég barn og þá breyttist vöxturinn aðeins. Ég átti erfiðara með að finna hluti sem klæddu mig vel og þegar ég ræddi þetta við aðrar konur þá voru þær í svipuðum sporum," segir Hólmfríður Guðmundsdóttir, margmiðlunarfræðingur hjá ferðaskrifstofunni Nordic Visitors á Laugavegi. Hún opnaði nýverið bloggsíðu þar sem boðið er upp á tískuráð fyrir lögulegar konur en að undanförnu hafa tískublogg skotið upp kollinum eins og gorkúlur. Þau miða hins vegar flest við að konur séu vaxnar eins og fyrirsætur tískuhúsanna en ekki „curvy" eins og það heitir á fagmálinu. Hólmfríður nefnir einmitt þessi vinsælu tískublogg sem finna má bæði á vefsvæðinu Eyjunni og Pressunni og segir að „curvy"-konurnar gleymist stundum í umræðunni. Hún hafi einmitt farið á sýningu hjá nemum við fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands og þar sá hún að fatahönnuðir nútímans eru ekki mikið að miða við að konur séu með laglegar línur. „Margt af þessu var ekki einu sinni með teygjuefni þannig að það var ekki fræðilegur að maður gæti klætt sig í þetta," útskýrir Hólmfríður. „Þetta blogg er því líka hugsað til að bæta aðeins ímyndina og sjálfstraustið og vekja fólk til umhugsunar um að níutíu og fimm prósent kvenna eru bara eðlilegar og lögulegar konar með fallegar línur," útskýrir Hólmfríður sem opnaði bloggsíðuna í lok apríl og hefur fengið mikil viðbrögð við henni. „Mér telst til að ég hafi kannski fengið í kringum þúsund gesti á dag síðan þetta byrjaði allt saman." Hólmfríður segist bara rétt vera að byrja en hefur þegar skotið eina goðsögnina niður. Að lögulegar konur eigi alltaf að vera í svörtu. „Ég fór á kynningu fyrir stuttu og þar var sagt að þótt svart eigi að grenna þá lætur liturinn mann einnig líta út fyrir að vera eldri. Þótt svartur sé alltaf klassískur þá er að koma sumar og konur eiga ekki að vera smeykar við að velja björtu litina því þeir koma með þennan ferska blæ." Tískublogg Hólmfríðar er að finna á curvychic.blog.is. freyrgigjga@frettabladid.is
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Lífið samstarf Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Bylgjulestin brunar á Flúðir Lífið samstarf Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira