Fótbolti

Forsetinn bjargaði lífi leikmanns

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Forseti búlgarska félagsins Slavia Sofia, Ventsislav Stefanov, framdi mikla hetjudáð á leik unglingaliðs félagsins á dögunum.

Einn leikmanna Slavia, Radomir Nivoc, féll þá niður á miðjum vellinum og virkaði meðvitundarlaus. Dómarinn sá samt enga ástæðu til þess að stöðva leikinn.

Stefanov lét það ekki á sig fá því hann sá að ástandið var hættulegt og rauk inn á völlinn. Þá var Nivoc búinn að gleypa tungu sína en Stefanov tókst að losa hana og bjarga lífi leikmannsins.

„Ég sá strákinn hníga niður og þurfti ekkert leyfi frá dómaranum til þess að fara inn á völlinn og hjálpa drengnum. Ég hikaði ekki, ég hefði gert það sama fyrir hvern sem er, ekki bara fyrir Slavia-leikmann," sagði Stefanov kokhraustur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×