Gogoyoko þarf hundrað milljónir 8. maí 2010 14:30 Gogoyoko bindur vonir við að afla yfir eitt hundrað milljóna í hlutafjárútboðinu.
Tónlistarveitan og netsamfélagið Gogoyoko.com er í miðju hlutafjárútboði um þessar mundir og bindur vonir við að afla yfir eitt hundrað milljóna króna áður en þessi mánuður er á enda. „Við erum á öllum áætlununum sem við höfum lagt upp með. Félagið er mjög vel rekið og þetta er ekkert sem er að koma okkur á óvart,“ segir Haukur Davíð Magnússon, framkvæmdastjóri Gogoyoko og einn af stofnendum fyrirtækisins. „Eins og allir þekkja sem eru í nýsköpun fer mikil vinna í að koma hlutum af stað. Þetta er barátta við að halda sér gangandi og koma sér í sjálfbærni. En við höfum fengið mjög góð viðbrögð við okkar kynningum og erum bjartsýn á að fyrr en seinna munum við taka við fjármagni til að fara í næsta tveggja ára fasa með félagið.“ Í byrjun síðasta árs var gengið frá samningum fjárfestingarfélags í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Vilhjálms Þorsteinssonar, stjórnarformanns CCP, við Gogoyoko um fjármögnum fyrirtækisins. Nam upphæðin hundrað milljónum króna. Næsta skref er semsagt að tvöfalda þá tölu og rúmlega það. Rætt hefur verið bæði við innlenda og erlenda aðila og hefur Íslandsbanki verið Gogoyoko til aðstoðar. „Félagið hefur verið að tikka í þessi box sem það ætlaði sér að gera og ég vil ítreka að það er vel rekið og undir rekstraráætlunum,“ segir Haukur Davíð. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að brátt muni stjórnendur Gogoyoko eiga erfitt með að greiða sér laun vegna peningaskorts. „Það er ekkert hægt að fullyrða um það. Við erum með sterka aðila sem eru inni í félaginu og það er mikil trú á félaginu,“ segir Haukur og vonast eftir því að komandi samningafundir eigi eftir að gefa góða raun varðandi framtíðina. - fb
Mest lesið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Fleiri fréttir Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Sjá meira