Íslenski boltinn

FH-ingar bikarmeistarar karla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tommy Nielsen vann sinn sjöunda stóra titil með FH.
Tommy Nielsen vann sinn sjöunda stóra titil með FH. Mynd/Daníel
FH-ingar tryggðu sér sigur í VISA-bikar karla með 4-0 stórsigri á KR-ingum í bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvellinum í kvöld.

FH-ingar fengu tvö víti í fyrri hálfleik og voru 2-0 yfir í hálfleik en tóku síðan öll völd á vellinum í seinni hálfleiknum.

Þetta er aðeins annar bikarmeistaratitil FH frá upphafi en sigur FH í kvöld þýðir að félagið er búið að vinna stóran titil síðustu sjö sumur eða allt frá því að Íslandsmeistaratitillinn kom fyrst í Krikann árið 2004.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á Laugardalsvelli í kvöld og myndaði fagnaðarlæti FH-inga í leikslok.

Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.





Mynd/Daníel
Mynd/Daníel
Mynd/Daníel
Mynd/Daníel
Mynd/Daníel
Mynd/Daníel
Mynd/Daníel
Mynd/Daníel
Mynd/Daníel



Fleiri fréttir

Sjá meira


×