Fótbolti

Ætlum að æsa Rooney upp

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rooney hefur ekki verið í neinu þjóðhátíðarskapi á HM.
Rooney hefur ekki verið í neinu þjóðhátíðarskapi á HM.

Bostjan Cesar, varnarmaður slóvenska landsliðsins, segir að leikmenn Slóveníu ætli sér að reyna að æsa Wayne Rooney upp í lokaleik liðanna í riðlakeppni HM. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur enda þarf England að vinna til þess að komast áfram í keppninni.

Cesar er enn fúll út í Rooney vegna uppákomu sem átti sér stað í vináttulandsleik þjóðanna á síðasta ári. Rooney fékk þá víti eftir baráttu við Cesar en varnarmaðurinn segir að Rooney hafi reynt að slasa sig.

"Það vita allir að Rooney reyndi að meiða mig. Við ætlum okkur að æsa hann upp í leiknum og sjá til þess að leikurinn verði slæm reynsla fyrir hann og liðið. Ég er með hreina samvisku eftir síðasta leik en Rooney getur ekki sagt það sama," sagði Cesar en flestum í slóvenska liðinu virðist vera í nöp við Rooney eftir síðasta leik liðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×