Hönnun Sonju Bent vekur athygli ytra 14. maí 2010 09:00 Sonja Bent segir það heiður að hafa prýtt upphafssíðu bresku vefsíðunnar Not Just A Label. Fréttablaðið/Stefán
Hönnun Sonju Bent var á upphafssíðu vefsíðunnar Not Just A Label fyrir skemmstu, en síðan er eins konar vefsamfélag hönnuða hvaðanæva að úr heiminum og eru notendur hans rúmlega 3.500 manns. Að sögn Sonju velja stjórnendur síðunnar ákveðinn hönnuð til að vera á forsíðu hennar nokkrar vikur í senn, en þetta er í annað sinn sem Sonja er valin á forsíðuna. „Þetta er vefsamfélag ætlað hönnuðum þar sem þeir geta kynnt sig og sínar vörur fyrir hver öðrum og væntanlegum kaupendum. Auk þess er hægt að selja vörur sínar á síðunni og einnig fær maður tilkynningar um laus störf, hönnunarsamkeppnir og styrki í gegnum þessa síðu," úskýrir Sonja og segir það mikinn heiður að hafa verið valin á forsíðuna. „Þetta er auðvitað mikill heiður en þess utan finn ég að áhugi fólks á hönnun minni eykst eftir að hafa verið á forsíðu vefjarins, þannig að þetta er mikil hjálp líka. Síðast fékk ég meðal annars umfjöllun í belgísku tímariti." Sonja segist enn fá mikla athygli vegna útskriftarlínu sinnar frá árinu 2007 sem var innblásin af origami, japanskri pappírslist. „Ég fæ mikið af fyrirspurnum um sömu flíkina, sem er einmitt sú flóknasta sem ég hef gert. Eins og staðan er núna þá hef ég ekki undan við að gera flíkurnar þar sem ég stend ein í þessu. Það hefur ekki verið hægt að framleiða vöruna hér á landi og hingað til hefur verið of dýrt að framleiða vörurnar erlendis. Ég verð þó að finna lausn á þessu bráðlega því ekki nennir fólk að bíða endalaust eftir vörunum," segir Sonja að lokum og hlær.- sm
Mest lesið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fleiri fréttir Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Sjá meira