Ferðir Guðríðar sett upp um borð í Íslendingi 14. maí 2010 19:00 Þórunn Clausen tekst á við Guðríði Þorbjarnardóttur. Mynd/Víkingaheimar
Einleikurinn Ferðir Guðríðar kom upp í aðdraganda árþúsundamótanna á vegum Brynju Benediktsdóttur. Hefur sýningin verið á fjölunum víða: fór hún um Bandaríkin og Kanada og hefur verið leikin af fjölda leikkvenna gegnum árin, bæði á íslensku og ensku. Nú gefst tækifæri til að sjá þennan áhrifamikla einleik um víðförlustu konu miðalda á norðurhveli heims því verkið verður annað kvöld frumsýnt í Víkingaheimum í Reykjanesbæ. Sviðið er ekki ódýrt: einleikurinn er settur á svið í Íslendingi, eftirgerð víkingaskips eftir Gunnar Marel Eggertsson. Áhorfendur munu ganga um borð og fara í þetta ferðalag með Guðríði sem gengur um skipið og segir sögu sína sem hefst á ferðalagi frá Íslandi vestur um haf og endum á suðurgöngu Guðríðar, þar sem hún hittir páfann í Róm. Að leikhúsinu standa feðgarnir Einar Benediktsson og Pétur Einarsson og fleiri sem sáu fyrir sér að um borð í víkingaskipinu Íslendingi, sem Víkingaheimar eru byggðir í kringum, væri upplagt að leika sögur norrænna manna. Víkingaheimar opnuðu fyrir tæpu ári í glæsilegu nýju húsnæði þar sem skipið Íslendingur, völundarsmíð, er miðpunkturinn en auk þess er þar vönduð sýning um landafundi Íslendinga og veitingahús. Víkingaheimar eru á Víkingabraut 1 í Reykjanesbæ og þar er fyrirhugað að sýningar verði í framtíðinni. Þar með eykst um helming fjöldi leikhúsa sunnan Hafnarfjarðar en Graal í Grindavík er í fullu fjöri. Ferðasaga Guðríðar eftir Brynju Benediktsdóttir er í nýrri uppfærslu Maríu Ellingsen. Þórunn Clausen leikur Guðríði, Snorri Freyr Hilmarsson hannar leikmynd, Björn Bergsteinn Guðmundsson lýsir og Sveinbjörg María Ingibjargardóttir hannar búninga. Miðabókanir eru hér á midi.is. - pbb
Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Sjá meira