Greta Mjöll bæði með flest mörk og flestar stoðsendingar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2010 17:00 Greta Mjöll Samúelsdóttir.
Blikinn Greta Mjöll Samúelsdóttir hefur heldur betur slegið í gegn með Northeastern háskólanum í vetur en hún var á skotskónum í gær þegar Northeastern Huskies gerðu 1-1 jafntefli við Drexel Dragons í bandarísku háskóladeildinni í knattspyrnu. Greta Mjöll skoraði markið sitt snemma í síðari hálfleik, lék þá á tvo varnarmenn Dragons sem og markvörðinn og skoraði. Hún var hins vegar óheppin með langskot sín, skaut bæði í stöng og þverslá, og markvörður Dragons varði glæsilega skot hennar út við stöng í lok leiksins. Greta Mjöll og Sandra Sif Magnúsdóttir léku báðar allan leikinn með Huskies og fengu lof fyrir frammistöðu sína. Greta Mjöll er nú markahæst leikmanna Huskies ásamt Veronicu Napoli, með 6 mörk í 11 leikjum, og hefur gefið flestar stoðsendingar. Huskies hafa nú sigrað í 7 leikjum í deildinni, gert eitt jafntefli og tapað þremur. Dagskráin hefur verið stíf hjá Gretu Mjöll og Söndru Sif með Huskies undanfarið. Liðið hefur leikið fjóra leiki á síðustu tíu dögum, unnið tvo, gert eitt jafntefli og tapað einum. Greta Mjöll lagði um síðustu helgi upp sigurmark Northeastern gegn Virginia Commonwealth (1-0) og mark liðsins í ósigri gegn liði James Madison háskóla (1-3), en Napoli skoraði bæði mörkin. Sandra Sif lagði upp annað mark Northeastern í sigri á Delaware síðastliðinn fimmtudag (3-2), en í þeim leik áttu þær stöllur báðar skot í þverslá.
Fótbolti Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Sjá meira