Kórverk Kjartans flutt í New York 9. september 2010 10:30 Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós (lengst til vinstri) tekur þátt í tónlistarhátíðinni White Light Festival 15. nóvember. fréttablaðið/gva „
Þetta getur verið djöfulsins vesen en þetta getur verið gaman stundum,“ segir Kjartan Sveinsson, hljómsborðsleikari Sigur Rósar, um kórtónlistina sem hann hefur verið að semja í allt sumar. Tvö verk eftir hann verða flutt í kirkju Páls postula í New York 15. nóvember. Fyrra verkið er fyrir breska karlakvartettinn The Hilliard Ensemble og það síðara er fyrir þjóðarkór Lettlands. Tónleikarnir eru liður í tónlistarhátíðinni White Light Festival sem Lincoln Center í New York stendur fyrir. Þar er megináhersla lögð á tengsl tónlistar og andlegra málefna. Seinni hluti kvöldsins er í höndum hljómsveitarinnar Riceboy Sleeps sem Jónsi úr Sigur Rós og kærastinn hans Alex Somers skipa. Kjartan hlakkar til að koma fram á hátíðinni en tekur fram að hann hafi enn ekki lokið við verkin og því séu þau ekki alveg fullmótuð. Hann hefur unnið við þau í sumar, enda haft góðan tíma aflögu á meðan Jónsi hefur verið í tónleikaferð um heiminn til að fylgja eftir plötu sinni Go. Sigur Rós hefur fyrir vikið verið í pásu en heldur áfram að vinna að nýrri plötu eftir áramót. Kjartan hefur á ferli sínum unnið töluvert einn á báti. Hann samdi tónlistina við stuttmyndirnar Síðasti bærinn, sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna, og Plastic Bag eftir bandaríska verðlaunaleikstjórann Ramin Bahrani. Einnig samdi hann tónlistina við kvikmyndina Ondine eftir írska leikstjórann Neil Jordan með Colin Farrell í aðalhlutverki. Kjartan starfar einnig sem upptökustjóri og hefur meðal annars tekið upp báðar plötur Ólafar Arnalds. -fb
Mest lesið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Lífið Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Lífið Zendaya sást í miðbænum Lífið Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi Lífið Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Lífið Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Lífið Sumarleg og saðsöm salöt Lífið Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Lífið Fleiri fréttir Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Sjá meira