Guðný bloggar um danstónlist 12. maí 2010 08:00 Guðný Svava Gestsdóttir heldur úti bloggi þar sem hún fjallar um danstónlist. Fréttablaðið/Anton
Guðný Svava Gestsdóttir heldur úti tónlistarbloggi undir nafninu Missy Melody og hefur skrifað undir því nafni í rúmt ár. Á blogginu fjallar Guðný Svava um flestar stefnur innan danstónlistar og segir hún slíkt blogg lengi hafa vantað hér á landi. „Mér fannst vanta blogg þar sem fjallað væri um þessa tegund af tónlist. Ég hlusta á Beatport allan daginn í vinnunni og það getur verið erfitt að finna góða hluti því það er svo mikið framboð af danstónlist í dag. Ég vel bara þau lög sem mér finnst góð og set það inn á bloggið mitt, ég er í raun ekki að gagnrýna tónlist því ég fjalla einfaldlega ekki um tónlist sem mér þykir leiðinleg." Guðný Svava hefur starfað sem plötusnúður frá árinu 1994 en segist þó lítið hafa sinnt spilamennskunni undanfarin ár þar sem hún sé orðin móðir og segir það ekki fara sérstaklega vel við lífsstíl plötusnúðs. Að eigin sögn byrjaði hún upphaflega að blogga til að geta sjálf haldið betur utan um alla þá tónlist sem hún fann á netinu. „Ég hef verið að gera árslista fyrir ýmsa útvarpsþætti í mörg ár og fannst þetta kjörin leið til að halda utan um alla tónlistina sem ég hlustaði á yfir árið. Svo vatt þetta bara upp á sig." Guðný Svava skrifar allar færslurnar á ensku en segir það ekki vefjast fyrir sér. „Ég skrifaði fyrst á íslensku en fékk svo mikið af bréfum frá fólki sem var að biðja mig um að þýða færslurnar fyrir sig yfir á ensku og þá ákvað ég bara að svissa yfir. Ég held að það séu um hundrað og fimmtíu manns sem heimsækja síðuna daglega núna sem er ánægjulegt." Þeim sem vilja fylgjast með skrifum Guðnýjar Svövu er bent á vefsíðurnar missymelody.blogcentral.is og rvkunderground.com/missy-melody. -sm
Mest lesið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fleiri fréttir Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Sjá meira