Bandaríkjamenn brjálaðir yfir markinu sem dæmt var af þeim Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júní 2010 20:00 Clint Dempsey tjáir sig við dómarann frá Malí. Mynd/AP
Leikmenn og þjálfari bandaríska landsliðsins voru mjög ósáttir eftir 2-2 jafntefli á móti Slóveníu á HM í Suður-Afríku í dag þrátt fyrir að hafa sýnt mikinn karakter með því að koma til baka eftir að hafa lent 2-0 undir. Ástæðan er að mark frá Maurice Edu á 85. mínútu leiksins var dæmt af en markið hefði tryggt Bandaríkjamönnum 3-2 sigur og lykilstöðu í C-riðlinum. „Það eina sem var í gangi í þessu föstu leikatriði var að Slóvenarnir voru að halda mínum leikmönnum," sagði Bob Bradley, þjálfari Bandaríkjanna. „Einn leikmaður þeirra hélt utan um Michael (sonur Bradley), Michael var að reyna að losa sig og þá var dæmd aukaspyrna. Ég veit ekki hvort þetta var svoleiðis en þetta er allavega ein sagan," sagði Bob Bradley. Landon Donovan sagðist hafa beðið dómarann Koman Coulibaly frá Malí um að útskýra dóminn sinn en hann fékk engin svör. „Ég get mér þess til að það hafi verið brot einhversstaðar því þetta gat ekki verið rangstæða. Við spurðum hann um hvar brotið hafi verið en hann svaraði ekki. Ef ég segi alveg eins og er þá er ég ekki viss um að hann tali mikla ensku," sagði Landon Donovan. „Við vorum betri í seinni hálfleiknum og við skoruðum þrjú mörk. Það væri mjög fróðlegt að fá að vita á hvað dómarinn dæmdi í lokin. Það rétta var að við áttum að komast þarna í 3-2," sagði Clint Dempsey og bætti við: „Við erum vonsviknir að vinna ekki leikinn þegar við skoruðu þrjú lögleg mörk," bætti Dempsey við.
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Tómas Bent og félagar í Hearts með sigurmark á ögurstundu Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Sjá meira