Kristján lék á móti aðalleikurum Forbrydelsen í Macbeth 12. maí 2010 05:00 Kristján lék á móti Nicolas Bro og Sofie Gråbøl úr sjónvarpsþáttunum Forbrydelsen í leikritinu Macbeth. „
Það var gaman fyrir mig að kljást við svona fólk. Þetta er fólk sem leggur rosalega mikið í það sem það er að gera og er rosalega ötult," segir Kristján Ingimarsson. Hann lék nýverið í leikriti Shakespeare, Macbeth, á móti þeim Nicolas Bro og Sofie Gråbøl úr sjónvarpsþáttunum vinsælu Forbrydelsen. Fóru þau tvö með hlutverk herra og frú Macbeth og stóðu sig með mikilli prýði að sögn Kristjáns. Sjálfur lék hann hin ýmsu hlutverk í sýningunni, þar á meðal nornir og morðingja. Atriðin með nornunum fólu í sér nýstárlega hreyfilist og var það Kristján sem samdi þau. Rúmlega þrjátíu sýningar voru haldnar í leikhúsinu Gasværket í Kaupmannahöfn fyrir fullu húsi. Leikhúsið er gömul gasstöð sem rúmar 800 manns og er sérlega skemmtilegur vinnustaður að mati Kristjáns. „Húsið að innan er ferlega hrátt. Þetta er hringlaga tankur sem er hlaðinn úr grjóti og gluggarnir eru einnig hringlaga og mjög flottir," segir hann. „Þeir notfærðu sér þetta og gerðu einfalda sviðsmynd. Síðan var okkar að reyna að fylla út í þetta rými." Nicolas Bro nýtti áhuga sinn á ofurhetjum til að koma sér í gírinn fyrir hlutverk sitt sem hinn blóðþyrsti Macbeth. Kristján segir að Nicolas hafi gríðarlegan áhuga á teiknimyndahetjum á borð við Spider-Man og Superman. Hann safni teiknimyndablöðum af miklum þrótti og hafi nýtt áhuga sinn á ofurhetjum til að koma sér í gírinn fyrir hlutverk sitt sem hinn blóðþyrsti Macbeth. Kristján, sem hefur starfað mikið í Danmörku, leikstýrði sinni eigin sýningu áður en hann lék í Macbeth. Hún hét Big Wheel Café. Þar bauð hann gestaleikurum öðru hvoru að stíga á svið. Ólafía Hrönn Jónsdóttir var ein þeirra og eitt kvöldið mætti Nicolas Bro. „Hann kom inn á kaffihúsið sem Macbeth og tók innleikssenu úr leikritinu. Þetta var áður en Macbeth var frumsýnt og þannig kynntist ég honum fyrst," segir Kristján og greinilegt að Nicolas er maður sem fer sínar eigin leiðir. Næsta hlutverk Kristjáns verður í verkinu Af ástum manns og hrærivélar sem verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 20. maí og er hluti af Listahátíð í Reykjavík. Þar leikur hann einmitt á móti Ólafíu Hrönn. Þau sömdu einnig leikritið ásamt þeim Ilmi Stefánsdóttur og Vali Frey Einarssyni. „Okkur hefur tekist að gera alveg kolbrjálaða og stórskemmtilega sýningu," segir Kristján og hlakkar mikið til. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fleiri fréttir Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Sjá meira