Lífið

Kling & Bang boðið að sýna í Tate Modern

Túrbínusalurinn verður í vor vettvangur sýningaraðila víða um lönd. Hekla Dögg sýnir þar á vegum Kling & Bang. Mynd/Fréttablaðið
Túrbínusalurinn verður í vor vettvangur sýningaraðila víða um lönd. Hekla Dögg sýnir þar á vegum Kling & Bang. Mynd/Fréttablaðið

Tate Modern fagnar um þessar mundir tíu ára afmæli og er af því tilefni efnt til hátíðarinnar No Soul For Sale sem stendur dagana 14. til 16. maí. Þangað er boðið til þátttöku fjölda sjálfstæðra listastofnana víðs vegar að úr heiminum og verða fulltrúar Íslands þar félagar úr Kling & Bang: Hekla Dögg Jónsdóttir, Sirra Sigrún Sigurðardóttir og Ásdís Sif Gunnardóttir.

Hekla Dögg og Sirra Sigrún setja upp verkið Tower Of Now sem er súla eða turn sem rís 35 m upp í Túrbínusalnum (Turbine Hall) gerð úr pappírsstrimlum úr posa­rúllum. Súlan skapar rými sem verður vettvangur síbreytilegrar myndbands- og skúlptúrinnsetningar og Ásdís Sif Gunnarsdóttir frumsýnir 20 mínútna myndbandsverk sem hún kallar You are there in close up with your signature at the bottom of the frame.

Alls er boðið sjötíu framsæknum stofnunum til hátíðarinnar sem eru sóttar um kringluna alla frá Shanghaí to Rio de Janeiro og leggja þær undir sig hinn rómaða sýningarsal, Túrbínusalinn. Opnunin fellur inn í safnanóttina í London þegar listastofnanir og önnur söfn verða opin til miðnættis, föstudags- og laugardagskvöld.

Tate Modern var opnað 12. maí 2000 og hafa gestir þyrpst þangað: 45 milljónir gesta hafa sótt safnið heim og er aðsókn þangað ein helsta rósin í hnappagati listagyðjunnar. Þar á Ólafur Elíasson stóran hlut en sýning hans var mikið aðdráttarafl á sínum tíma og setti sýningarstjórum þar mark sem síðan er miðað við.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.