Sigurjón Sighvats náði De Niro í næstu mynd 11. maí 2010 06:00 Robert De Niro er einn frægasti kvikmyndaleikari sögunnar og hann mun leika eitt aðalhlutverkanna í næstu kvikmynd Sigurjóns Sighvatssonar.
Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi hefur náð samningum við bandaríska stórleikarann Robert De Niro um að leika í spennumyndinni The Killer Elite. Þar með eru línur að skýrast í þessari ævisögulegu kvikmynd sem byggð er á lífi og starfi sérsveitarmannsins Sir Ranulph Fiennes. Sigurjón segir nafn De Niro góða viðbót við leikarahóp myndarinnar. „Þetta gefur henni náttúrulega byr undir báða vængi og þetta verður stærsta kynningarmyndin á Cannes, allavega verður þetta sú kvikmynd sem er með stærstu stjörnunum," segir Sigurjón en tökur eru að hefjast í Ástralíu. Sigurjón, sem hefur unnið með mörgum af stærstu kvikmyndastjörnum heims, viðurkennir að hann sé bæði sæll og glaður með að hafa náð De Niro. „Þetta verkefni lítur vel út. Þótt leikstjórinn, Gary McKendry, hafi ekki áður gert svona stóra mynd þá hefur handritið spurst vel út og umboðsmenn hafa látið sína skjólstæðinga vita af því. Það segir sitt ef De Niro ákveður að leika í myndinni," segir Sigurjón. Varla þarf að hafa mörg orð um feril De Niro. Eftir hann liggja margar af frægustu persónum kvikmyndasögunnar, svo sem Travic Bickle úr Taxi Driver og Vito Corleone úr Godfather 2. Auk De Niro leika þeir Jason Statham og Clive Owen í myndinni auk Dominics Purcell, þekktastur fyrir leik sinn í Prison Break. Eins og áður segir er myndin byggð á ævisögu Sir Ranulphs Fiennes sem kom út árið 1993 og olli miklu fjaðrafoki á sínum tíma. Enda upplýsti Fiennes þá um tilveru SAS-sérsveitanna sem bresk stjórnvöld höfðu þvertekið fyrir að væru til. - fgg
Mest lesið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fleiri fréttir Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Sjá meira