Stuðlameistari segir stóran mun á sigri og jafntefli 13. maí 2010 10:30 Hjörvar Hafliðason setti stuðulinn sextán á sigur Hauka gegn KR í Frostaskjólinu. Haukar náðu jafntefli og hefðu getað sigrað. Fréttablaðið/GVA „
Við urðum að loka fyrir að menn gætu lagt undir á sigur Hauka rúmri einni og hálfri klukkustund fyrir leik. Það voru ansi margir sem virtust reiðubúnir til að leggja sitthvað undir á slík úrslit," segir Hjörvar Hafliðason, stuðlameistari hjá Íslenskum getraunum. Mikla athygli vakti að stuðullinn á sigur Hauka gegn KR í Frostaskjólinu á Lengjunni var sextán, sem þýddi að viðkomandi fengi upphæðina greidda sextánfalt tilbaka ef svo ólíklega vildi til að Haukarnir merðu sigur. Algengur stuðull á útilið er á bilinu 3-5. Fjölmargir voru spenntir fyrir því að tippa á einhver óvæntustu úrslit íslenskrar knattspyrnusögu en Hjörvar segir stuðulinn enga tilviljun. Svipaður stuðull hafi verið notaður í leik Chelsea og Wigan í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar um síðustu helgi. Chelsea vann leikinn 8-0. Fyrstu sjötíu mínúturnar í Frostaskjólinu bentu til þess að stuðull lengjunnar hefði átt rétt á sér, Vesturbæjarstórveldið lék við hvurn sinn fingur, skoraði tvö mörk og skapaði urmulinn allan af dauðafærum. Allt kom fyrir ekki og Haukarnir náðu að jafna leikinn skömmu fyrir leikslok og voru raunar hársbreidd frá því að stela sigrinum. Stuðullinn á jafntefli var hins vegar „bara" fjórir enda segir Hjörvar stóran mun á sigri og jafntefli og það hafi í raun aldrei farið um hann eftir að Haukarnir jöfnuðu. Hjörvar segir úrslitin frá því á þriðjudagskvöld ekki breyta því að stuðullinn á Hauka verði sem fyrr mjög hár, í kringum sextán, enda er næsti leikur nýliðanna gegn hinum fornu fjandmönnum þeirra úr Hafnarfirði, sjálfum Íslandsmeisturunum í FH. - fgg
Mest lesið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fleiri fréttir Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Sjá meira