Maður Heru mikið spurður út í Eurovision-kjólinn 13. maí 2010 12:00 Halldór og Hera Björk eru dugleg að ganga á fjöll og sjást hér í einni af sínum göngum. Halldór verður að sjálfsögðu í Ósló þegar Hera tekur þátt í undankeppni og úrslitum Eurovision. „
Auðvitað smitast maður af þessu. Núna er maður á ári eitt í Eurovision,“ segir Halldór Eiríksson, rekstarhagfræðingur í innkaupadeild álversins í Reyðarfirði. Hann er unnusti Heru Bjarkar, fulltrúa Íslands í Eurovision, og stendur að sjálfsögðu þétt við bakið á sinni konu. Halldór viðurkennir að hafa verið laumuaðdáandi Eurovision, rétt eins og flestir Íslendingar. „Allir á Íslandi hafa gaman af Eurovision og það er virkilega forvitnilegt að kynnast þessari keppni og undirbúningnum fyrir hana í svona nálægð,“ segir Halldór en þeir sem hafa farið á Eurovision-keppni segja þetta einstaka upplifun og margir eiga hreinlega ekki afturkvæmt úr Eurovision-æðinu. „Nei, þetta virðist vera einstakt karnival,“ segir Halldór. Eurovision-hópurinn heldur til Óslóar á laugardaginn en töluverð óvissa ríkti um hvort treysta ætti á að flugleiðir væru opnar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Í gær var svo tekin ákvörðun um að fljúga og Halldór vonar að veðurguðirnir verði íslenska hópnum hliðhollir. „Annars fannst mér á þeim að þau væru bara til í allt, hvort sem það væri sigling með Norrænu eða eitthvað annað. En það er vissulega betra að fara flugleiðina og koma óþreytt út,“ segir Halldór en hann hefur mátt verjast spurningum frá samstarfsfólki sínu sem vilja vita allt um hvernig undirbúningurinn gangi. „Ég á voðalega bágt með mig, má ekkert segja en fæ margar spurningar, hvernig kjóllinn líti út og svo framvegis. Það sýna þessu allir mikinn áhuga,“ segir Halldór sem fer sjálfur til Noregs og verður í Ósló þegar undanúrslitin hefjast á þriðjudeginum. Og að sjálfsögðu einnig þegar úrslitakvöldið verður en Halldór er handviss um að Hera komist þangað. Í viðtali við Séð og heyrt fyrir skömmu viðurkenndi Hera Björk að Halldór væri einn af fáum sem hefði þorað að syngja fyrir hana. „Já, maður er svolítið skúffaður yfir því að hafa ekki komist í bakraddirnar, maður bregður kannski fæti fyrir einhverjum af bakröddunum,“ segir Halldór og hlær. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið „Ég er óléttur“ Lífið Fékk leyfi Nóbelskálds fyrir heiti nýrrar bókabúðar í Hamraborg Menning „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Lífið Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum Lífið Er Ormstunga djarfasta sýning ársins? Gagnrýni Kynlífssena sautján ára stúlku hafi splundrað samstarfi bræðranna Bíó og sjónvarp Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Tíska og hönnun Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Lífið samstarf Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið Bullandi stemning hjá Blikum Lífið Fleiri fréttir Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum „Er eðlilegt að kynlíf taki af mér stjórn og að ég sé upptekinn af kynlífi flesta daga?“ Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina tilviljun Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“