Kominn tími á Tinna-keppni 12. maí 2010 07:00 Sveinn H. Guðmarsson og Þórarinn B. Þórarinsson stjórna Tinna-spurningakeppni á Rosenberg í dag. fréttablaðið/Valli
Fjölmiðlamennirnir Sveinn H. Guðmarsson og Þórarinn B. Þórarinsson stjórna pöbba-spurningakeppni á Rosenberg í dag þar sem myndasöguhetjan Tinni verður í aðalhlutverki. Efnt er til keppninnar í tilefni af endurútgáfu Tinna-bókanna. „Svo ég tali fyrir sjálfan mig hef ég alltaf haft gaman af Tinna. Ég hef verið í spurningakeppnum í gegnum tíðina og samið spurningar og ég hef iðulega laumað inn einni eða tveimur Tinna-spurningum. Þannig að það var kominn tími á að smella í eina keppni," segir Sveinn H. Guðmarsson, útvarpsmaður á Rás 2. Hann stjórnar Tinna-spurningakeppni á Rosenberg í dag klukkan 17. Þeir félagar munu spyrja á þriðja tug Tinna-spurninga í dag og verða þær úr öllum áttum. Þrátt fyrir að vera mikill aðdáandi Tinna vill Sveinn ekki meina að hann sé fróðastur manna um þennan belgíska blaðasnáp. „Ég held að það séu menn þarna úti sem eru fróðari en ég um Tinna. Það verður gaman að sjá þá vonandi." En hvað er svona skemmtilegt við Tinna-bækurnar? „Í fyrsta lagi eru þær ofboðslega fyndnar og þýðingar Lofts Guðmundssonar eiga þó nokkurn þátt í því. Þetta eru líka vitsmunalegar bækur sem koma inn á alvöru málefni eins og stjórnmál, framandi heima og kynþáttahyggju," segir Sveinn. „Ekki það að maður eigi að fá alla sína heimssýn úr Tinna-bókunum en ég held að maður geti lært eitthvað af þeim umfram það sem kemur fram í öðrum teiknimyndasögum." Spurningakeppnin hefst klukkan 17 og eru kvenkyns aðdáendur Tinna sérstaklega hvattir til þátttöku. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fleiri fréttir Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Sjá meira