Innlent

Skagfirðingar krefjast þess að á þá verði hlustað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gríðarlega margir mættu á íbúafundinn í kvöld.
Gríðarlega margir mættu á íbúafundinn í kvöld.
Gríðarlega fjölmennur íbúafundur var haldinn á Sauðárkróki í kvöld til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði í heilbrigðisþjónustu.

Í samþykkt fundarins, sem send var fjölmiðlum fyrr í kvöld, er þess krafist að niðurskurðartillögur sem liggja fyrir í fjárlagafrumvarpi næsta árs verði dregnar til baka og er heilbrigðisráðherra hvattur til samráðs á jafnræðisgrunni við hagsmunaaðila í héraði um allar stærri ákvarðanir sem varða heilbrigðisstofnunina og fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu í Skagafirði.

„Íbúar í Skagafirði standa ekki á Austurvelli en eiga samt rétt á að á þá sé hlustað og að samfélagsgerð og velferðarþjónusta sem hefur verið byggð upp í þeirra heimabyggð í krafti margra kynslóða verði ekki brotin niður á nokkrum mánuðum af stjórnmálamönnum sem eru á mörkum þess að tapa tengslum við þjóðina í landinu," segir í samþykkt fundarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×