Innlent

Nýtt hjúkrunarheimili vígt í Kópvogi

Frá vígsluathöfninni í dag. Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri í Kópavogi, Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra og Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjómannadagsráðs.
Frá vígsluathöfninni í dag. Gunnsteinn Sigurðsson bæjarstjóri í Kópavogi, Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra og Guðmundur Hallvarðsson formaður Sjómannadagsráðs.
Nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu var vígt við Boðaþing í Kópavogi á dag. Rúm átta ár eru síðan nýtt og sérhannað hjúkrunarheimili tók til starfa á höfuðborgarsvæðinu.

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Kópavogsbær hafa byggt hjúkrunarheimilið og falið reksturinn Sjómannadagsráði, eiganda Hrafnistuheimilanna.

Í kjölfar vígslunnar hefst rekstur í fyrri áfanga Hrafnistu í Kópavogi með rýmum fyrir 44 einstaklinga. Alls er gert ráð fyrir rýmum fyrir 88 aldraða á hjúkrunarheimilinu og verður seinni áfanginn tekinn í notkun á næstu árum. Við upphaf rekstrarins munu á bilinu 40 til 50 manns starfa á hjúkrunarheimilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×