Verður þetta fyrir þjóðarstoltið eða bankareikninginn hjá Spánverjum? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júní 2010 17:45 Iker Casillas á æfingu með spænska landsliðinu. Mynd/AP
Evrópumeistarar Spánar fá langmest í bónus af öllum liðunum 32 sem taka þátt í HM í Suður-Afríku sem hefst á föstudaginn. Þetta hefur kallað á hörð viðbrögð heima fyrir þar sem efnahagsástandið er slæmt eins og annarsstaðar í heiminum. Stjórnmálamenn á Spáni hafa því keppst um að gagnrýna hversu mikið kemur í hlut hvers og eins leikmanns spænska landsliðsins vinnist heimsmeistaratitilinn 11. júlí næstkomandi. Spánverjar hafa aldrei orðið heimsmeistarar og það skýrir kannski að hluta til hversu upphæðin er há. Spænskir fjölmiðlar segja að hver leikmaður fái 600 þúsund evrur fyrir heimsmeistaratitil eða um 94 milljónir íslenskra króna. Upphæðin verður þegar orðin 120 þúsund evrur á mann komist liðið í úrslitaleikinn en það eru tæpar 19 milljónir íslenskra króna. Iker Casillas, markvörður og fyrirliði spænska landsliðsins, varði risabónusinn á blaðamannafundi í dag. Hann sagði að fjölskylda og vinir leikmannanna væru að glíma við kreppuna eins og aðrir en að það ætti ekki að blanda þessu tvennu saman. Hér fyrir neðan er listi spænska blaðsins Marca yfir bónusa hjá nokkrum þjóðum á HM takist leikmönnum þeirra að koma með heimsmeistarabikarinn heim. Spánn 600 þúsund evrur (94 milljónir íslenskar) Argentína 510 þúsund evrur (80 milljónir íslenskar) England 475 þúsund evrur (74 milljónir íslenskar) Frakkland 390 þúsund evrur (61 milljón íslenskar) Brasilía 180 þúsund evrur (28 milljónir íslenskar)
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Fleiri fréttir Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Sjá meira