Nani eyðilagði snilldarmark Ronaldo í gær - myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2010 12:15 Cristiano Ronaldo gat ekki leynt svekkelsi sínu þegar markið var dæmt af. Mynd/AP
Portúgalir unnu 4-0 stórsigur á heims- og evrópumeisturum Spánverja í gærkvöldi en leikurinn hefði kannski átt að fara 5-0. Cristiano Ronaldo sýndi snilldartilþrif á 37. mínútu leiksins þegar hann plataði Gerard Pique upp úr skónum og lyfti honum síðan fullkomlega yfir Iker Casillas í markinu. Markið var þó ekki dæmt gilt þökk sé hugsunarleysi Nani. Nani var rangstæður þegar Ronaldo lyfti boltanum yfir Casillas en hann skallaði boltann engu að síður inn í markið á marklínunni og stal markinu af fyrrum félaga sínum hjá Manchester United. Vandamálið var að hann stal ekki aðeins þessu snilldarmarki heldur sá hann til þess að það var dæmt af vegna rangstöðu. Það er hægt að skoða markið sem aldrei varð dæmt gilt með því að smella hér til að sjá alla sóknina og hér til að sjá endursýninguna í betri gæðum. Nani baðst afsökunar á hugsunarleysi sínu eftir leikinn. „Ég tók boltann því ég hélt að ég væri réttstæður. Þetta gerðist allt svo hratt. Ég bað Ronaldo afsökunar þegar ég var búin að hugsa málið betur. Þetta var frábærlega gert hjá honum og ég hefði ekki átt að eyðileggja þetta," sagði Nani í viðtölum við portúgalska fjölmiðla eftir leikinn.
Fótbolti Mest lesið Leikmaður Dana fór á sjúkrahús eftir leikinn í kvöld Handbolti Skýrsla Henrys: Strákarnir okkar eru orðnir stórir Handbolti EM í dag: Pirruðu danska blaðamenn og truflun í boði skattgreiðenda Handbolti Pytlick: „Ísland átti meira skilið í kvöld“ Handbolti „Margar ákvarðanir hjá dómurunum sem ég á erfitt með að lifa með“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Danmörku: Hetjuleg frammistaða gegn heimsmeisturunum Handbolti „Allt til staðar svo að þetta lið geti barist við Dani um gull“ Handbolti „Ég hugsa að þetta sé EM-met“ Handbolti „Ætla ekkert að fara að fela mig á bak við það“ Handbolti Danmörk - Ísland 31-28 | Strákarnir okkar spila um bronsið Handbolti Fleiri fréttir Mourinho mætir Real Madrid aftur eftir ævintýralegan sigur Benfica Brann slapp inn í umspilið eftir hjálp frá öðrum velli Mourinho bað Arbeloa afsökunar á fagnaðarlátunum Hvaða lið gætu mæst í umspili og sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar? Sjáðu markaflóðið í Meistaradeildinni Fékk þjálfarann til að dansa við sig í miðjum leik Markvörður Mourinho tryggði liðið áfram og Bodö/Glimt vann í Madrid Viktor yngstur í sögunni til að skora Evrópumark á Nývangi Sjáðu Viktor skora hjá Barcelona fyrir framan landsliðsþjálfarann Svona var lokaumferðin í Meistaradeildinni Mættu með snjóinn með sér til Madrid Allt undir á lokakvöldi: Sex ensk lið gætu farið beint í 16-liða úrslit Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Víkingur og Valur mætast í úrslitum Reykjavíkurmótsins Hlín á láni til Fiorentina FH selur Sigurð Bjart til Spánar Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Börsungar ósáttir eftir að PSG náði táningi frá þeim Barry bjargaði stigi fyrir Everton Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Kristall snýr aftur „þroskaðri og fullorðnari“ Sagðir borga 200 milljónir fyrir Kristal Mána Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Sjá meira