Ballettinn kom í stað Bandaríkjahers 6. maí 2010 07:00 Bryndís telur að koma dansskólans hafi ýtt undir áhuga barna á dansi. Hér er hún ásamt nemanda sínum í Los Angeles.
Bryn Ballett Akademían er dansskóli í Reykjanesbæ sem býður meðal annars upp á nám í klassískum ballett, nútímadansi og jassballett. Stofnandi skólans er danskennarinn Bryndís Einarsdóttir sem kenndi í mörg ár í Los Angeles auk þess sem hún hefur kennt dans í Englandi og Japan. „Ég er upprunalega úr Njarðvík en var búsett erlendis í fimmtán ár þar til ég flutti aftur heim fyrir tveimur árum. Ég byrjaði mjög ung að kenna við Dansstúdíó Sóleyjar og var einnig dugleg að sækja ýmis dansnámskeið út. Ég flutti svo út til Los Angeles og kenndi þar við ýmsa listdansskóla auk þess að hafa kennt við Lee Strasberg-leiklistarskólann," útskýrir Bryndís og segir kærasta sinn vera ástæðuna fyrir því að hún flutti heim á ný. „Ég kynntist kærasta mínum í Englandi. Hann er jurtalæknir og var afskaplega hrifinn af Íslandi og vildi endilega flytja hingað. Mig langaði aftur á móti að flytja til Frakklands og rækta ávexti og kenna ballett. Hann hélt áfram að suða í mér og á endanum gaf ég mig og nú erum við búin að vera hér í næstum tvö ár." Bryndís telur að koma dansskólans hafi ýtt undir dansáhuga barna og ungmenna í bænum og eru nemendur við skólann nú orðnir um tvö hundruð talsins. Skólinn er á gamla varnarsvæðinu, í stórum bröggum sem áður hýstu skotfærageymslu Bandaríkjahers. „Þetta er mjög skemmtilegt húsnæði en við létum blessa það í bak og fyrir áður en við tókum húsið í notkun svona til að fá góðan anda hingað inn," segir Bryndís og hlær. Hægt er að kynna sér stundaskrá dansskólans á vefsíðunni www.bryn.is. - sm
Mest lesið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fleiri fréttir Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Sjá meira