Ganverjar í átta liða úrslit - myndband Henry Birgir Gunnarsson skrifar 26. júní 2010 20:16 Asamoah Gyan fagnar sigurmarki sínu í leiknum.
Gana mun mæta Úrúgvæ í átta liða úrslitum HM í Suður-Afríku. Það varð ljóst í kvöld er Gana sló út lið Bandaríkjanna, 2-1, í framlengdum leik. Ganverjar fengu óskabyrjun á leiknum því Kevin-Prince Boateng kom þeim yfir á 5. mínútu leiksins. Afríkumönnunum gekk vel að verjast en þegar rúmur klukkutími var liðinn af leiknum braut Jonah Mensa á Clint Dempsey í teignum og vítaspyrna dæmd. Hana tók Landon Donovan. Hann skoraði með því að skjóta boltanum í stöngina og inn. Ákaflega öruggt. Mikið fjör var á lokamínútunum en ekki tókst liðunum að skora og því varð að framlengja. Það voru rétt rúmar tvær mínútur liðnar af framlengingunni þegar Asamoah Gyan slapp í gegnum vörn Bandaríkjanna. Hann var með varnarmann í bakinu en hélt jafnvægi og kláraði færið af stakri snilld. Óskabyrjun hjá Gana. Bandaríkjamenn sóttu allt hvað þeir gátu eftir markið. Flestar sóknarlotur þeirra voru hugmyndasnauðar og fyrirsjáanlegar. Varnarmenn Gana lentu því ekki í miklum vandræðum. Ganverjar þraukuðu út framlenginguna og fögnuðu innilega fræknum sigri. Þeir halda þar með uppi heiðri Afríku í keppninni. Hægt er að sjá mörkin og tilþrifin úr leiknum hér.
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Íslenski boltinn „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fleiri fréttir Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Sjá meira