Kísilverksmiðja fái orku sem ætluð var álveri 16. febrúar 2010 04:45 Skrifa undir Eyþór Arnalds hjá Strokki Energy, Hjörleifur B. Kvaran og Guðlaugur G. Sverrisson frá Orkuveitunni og Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Strokks.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) samþykkti í gær rammasamning um orkusölu frá Hverahlíðarvirkjun til kísilmálm- og sólarkísilverksmiðju við Þorlákshöfn. Stefnt er að bindandi samkomulagi á næstu mánuðum. Samningurinn tekur til 85 MW af 90 MW, sem framleiða á í Hverahlíð. Miðað er við afhendingu orkunnar árið 2013. Fyrirtækið Thorsil ehf., í eigu kanadíska fyrirtækisins Timminco Limited og Strokks Energy er viðsemjandi Orkuveitunnar, segir í yfirlýsingu frá OR. Timminco rekur nú þegar kísilmálmverksmiðju í Kanada. Uppbygging verksmiðjunnar við Þorlákshöfn á að kosta 28,5 milljarða króna. Hún verður byggð í þremur áföngum 2013 og 2014. 400 manns munu starfa við verksmiðjuna á byggingartíma en 160 eftir að framkvæmdum lýkur. Áður hafði OR gert rammasamning við Norðurál um að afhenda orku Hverahlíðarvirkjunar til álvers í Helguvík. Sá samningur rann úr gildi í desember en hefur verið talinn með þegar rætt hefur verið um að 325 MW af 625 MW orkuþörf álvers í Helguvík liggi fyrir. Samningurinn frá í gær byggir á að nýjum verkefnum í Ölfusi beri forgangsréttur að orku Hverahlíðarvirkjunar. Fjármögnun virkjunarinnar er ekki að fullu lokið, segir í tilkynningu frá OR í gær, en framkvæmdir hefjast þegar fjármögnun liggur fyrir og bindandi samningur hefur verið gerður um orkusöluna. Samningurinn við Thorsil var samþykktur í stjórn OR í gær með atkvæðum fulltrúa sjálfstæðismanna, framsóknarmanna og Akranesbæjar. Fulltrúar Samfylkingar og VG sátu hjá. - pg
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira