Ekur um Rangárvallasýslu í flottasta leigubíl landsins 10. maí 2010 06:00 Jón Pálsson og nýi jeppinn sem hann fékk afhentan á Selfossi á fimmtudaginn. „
Það er málið að bjóða flotta þjónustu og flotta bíla í dag. Maður fær það til baka með meiri vinnu," segir leigubílstjórinn Jón Pálsson. Jón fékk afhentan nýjan Land Cruiser á Selfossi á föstudag, sem er vafalaust einn flottasti leigubíll landsins, enda er grunnverð á svona glæsikerru frá 12 milljónum króna. Hann býr í Rangárvallasýslu og hefur starfað þar sem leigubílstjóri í sex ár. „Þetta er sjöundi Land Cruiserinn sem ég eignast," segir Jón, sem var staddur í Reykjavík að láta koma fyrir verðmæli og setja GPS-tæki í bílinn þegar Fréttablaðið náði í hann. „Þetta er Land Cruiser 150. Dýrasta týpan, VX - allt í leðri og rafmagni." Jón er harður Land Cruiser maður og ók síðast um á 120-týpunni. Á vefsíðu Toyota kemur fram að jeppinn sé hannaður til að takast á við erfiðustu akstursskilyrði með afburðafimi og stöðugleika. Eitthvað sem kemur sér vel í Rangárvallasýslunni þar sem skilyrðin geta verið afar frábrugðin þeim sem höfuðborgarbúar þekkja. Jón þarf ekkert að óttast þar sem á vefsíðunni kemur enn fremur fram að erfiðustu áskoranir verði eins og hversdagslegur akstur með framúrskarandi útbúnaði sem veitir stuðning til að komast yfir hinar erfiðustu hindranir. Hann er því eins og gefur að skilja ekki í vafa um að nýi gullslegni Cruiserinn sé sá langflottasti sem hann hefur nokkurn tíma ekið. „Það er engin spurning. Það er algjör draumur að keyra hann," segir Jón. „Ég er alveg sannfærður um að farþegarnir munu kunna að meta hann." Hótelgestir í Rangárvallasýslu eru duglegir við að nýta þjónustu Jóns. „Ég vinn svolítið út frá hótelunum þarna, Hótel Hvolsvelli og Hótel Rangá," segir hann. Jón vílar ekki fyrir sér að bregða sér í betri fötin, ef svo ber undir. „Ég keyri brúðhjón frá Hótel Rangá að Skógafossi og Seljalandsfossi. Það er mjög vinsælt. Þá bý ég mig upp og fer í smóking - er í mínu flottasta taui." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Lífið samstarf Bylgjulestin brunar á Flúðir Lífið samstarf Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira