Annað gildi hlutanna 10. maí 2010 20:00 Katla við fjársjóðskistuna sína sem geymir litla muni úr náttúrunni. Fréttablaðið/GVA
Katla Maríudóttir er náttúrubarn og segir verðmæti hluta ekki teljast í krónum. Hún er í hópi útskriftarnema í arkitektúr við Listaháskóla Íslands þetta árið og hleypti Fréttablaðinu inn á gafl hjá sér. Þegar Katla er beðin um að segja frá uppáhaldshlutunum sínum á heimilinu opnar hún lítinn kistil. sem hún kallar fjársjóðskistu, og tínir upp úr honum steina og hluti sem hún hefur tínt úti í náttúrunni. Hlutirnir minna hana á heimahagana. „Ég ólst upp í sveit á fallegum stöðum eins og Þingvöllum, Skálholti og Skaftártungum og við systkinin lékum okkur mikið úti. Nú þegar ég er flutt til borgarinnar finnst mér nauðsynlegt að hafa litla hluti í kringum mig eins og steina, hraunmola, skeljar og rekaviðarbúta, sem minna mig á náttúruna. Þeir eru auðvitað verðlausir fyrir öðrum en skipta mig máli." Katla hefur stundað nám í arkitektúr undanfarin þrjú ár og var skólinn orðinn eins og hennar annað heimili. Hún geymdi því litlu hlutina sína á vinnuborðinu og gáfu þeir henni tengingu við náttúruna. Hún segist stundum hafa uppskorið hlátur skólafélaganna fyrir vikið en lét það ekkert á sig fá. „Mér fannst bara gott að hafa stein í vasanum eða á borðinu sem litla áminningu um náttúruna. Eins var ég komin með þennan kaffibolla í skólann sem ég hálfpartinn stal af mömmu," segir hún og fær sér sopa úr rósamynstruðum kaffibolla. „Hann var eins og lítil tenging við heimilið." Katla segir foreldra sína hafa kennt sér í æsku dýpra gildi hlutanna, að þó hlutur sé ekki margra króna virði geti hann verið verðmætur á annan hátt. „Mamma og pabbi eru bæði prestar og voru mikið með okkur systkinunum. Systir mín er ljósmyndari í London og bróðir minn tónlistarmaður í Noregi, svo á ég tvo litla bræður sem búa enn heima. Náttúran er stór partur af okkur öllum og það sést á ljósmyndum systur minnar og heyrist í tónlist bróður míns. Hún hefur bara svo mikil áhrif á þá sem alast upp í henni. Ég held að þeir sem eru tilbúnir til að eyðileggja náttúruna hljóti að misskilja hugtakið verðmæti." heida@frettabladid.is
Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Laufey á landinu Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Fleiri fréttir Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Sjá meira