Innlent

Smituðust af svínaflensu innanlands

Síðasta sólarhringinn hafa greinst fjögur tilfelli á Íslandi með nýju inflúensuna, oft kölluð svínaflensa og eru inflúensutilfellin því orðin 15 samtals frá því í maí samkvæmt Landlæknaembættinu.

Um er að ræða tvær konur 24 og 33 ára sem ekki hafa ferðast erlendis og virðast því hafa smitast innanlands. Þá greindist inflúensan hjá 21 árs gömlum karli sem kom frá Filippseyjum 15. júlí og 7 ára gömlum dreng sem einnig kom frá Filippseyjum 16. júlí en tengdust að öðru leyti ekki.

Engin þessara fjögurra sjúklinga var með alvarleg einkenni og eru þeir allir á batavegi.

Flest tilfelli sem hingað til hafa greinst hér á landi hafa ferðast erlendis eða tengst þeim sem það hafa gert. Þrjú tilfellanna sem hafa greinst hafa ekki ferðast erlendis eða tengst þeim sem það hafa gert svo vitað sé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×