Ancelotti: Það er enginn öruggur með sitt sæti í Chelsea-liðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júlí 2009 11:00 Carlo Ancelotti, nýr stjóri Chelsea. Mynd/AFP
Carlo Ancelotti, nýr stjóri enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea, stjórnar liðinu í fyrsta sinn í kvöld í æfingaleik á móti bandaríska liðinu Seattle Sounders en Chelsea-liðið er nú mætt alla leið á vesturströnd Bandaríkjanna. Carlo Ancelotti ætlar að halda öllum leikmönnum á tánum og það verður enginn nafnaleikur á Brúnni næsta vetur. Hvort sem þú heitir Frank Lampard, Didier Drogba eða John Terry þá þarf viðkomandi að standa sig til þess að vinna sér sæti í byrjunarliðinu. „Ég ætla ekki að velja A-lið eða B-lið hjá Chelsea. Chelsea er frábært lið af því að það hefur 25 frábæra leikmenn og það er ómögulegt fyrir mig að velja sérstakt aðallið. Ég vil hafa 25 leikmenn tilbúna til að spila með Chelsea-liðinu og það er líka enginn öruggur með sitt sæti í Chelsea-liðinu," sagði Carlo Ancelotti. Þegar Jose Mourinho var stjóri Chelsea þá talaði hann um að níu leikmenn væru með tryggt sæti í liðinu ef að þeir væri heilir. Það voru þeir: Michael Essien, Claude Makelele, Frank Lampard, John Terry, Ricardo Carvalho, Ashley Cole, Didier Drogba, Michael Ballack og Petr Cech. Nú verður fróðlegt að sjá hvernig og hvort einhver forgangsröðun verður hjá Ancelotti. Carlo Ancelotti er mjög ánægður með liðsmórallinn innan liðsins og segir það hafa komið sér á óvart hversu góður hann sé. Leikmenn sinni öllu af fullum hug og leggja sig allir mikið fram. „Það sem skiptir mestu máli er að ég er búinn að erfa mjög gott lið sem kann að vinna saman í rétta átt," sagði Ancelotti. Carlo Ancelotti hefur líka tekið enskunáminu mjög alvarlega og hefur meðal annars beðið ítalska blaðamenn að tala við sig á ensku en ekki ítölsku þegar þeir hringja í hann. „Ég búinn að vera að tala ensku á hverjum degi og ég er orðinn miklu betri en fyrir tíu dögum. Leikmennirnir hjálpa mér líka með því að tala rólega og þá skil ég þá vel," sagði Ancelotti.
Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Fleiri fréttir Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Sjá meira