Óvissa um aðkomu kröfuhafa 21. júlí 2009 04:30 Fulltrúar skilanefnda Eggert Þór Ólason, yfirlögfræðingur Landsbankans, Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, og Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, á blaðamannafundi í gær. fréttablaðið/gva „
Það er búið að fastsetja valkostina og óvissunni er eytt með þessu samkomulagi," segir Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis. „Með samningnum hefur skilanefnd Glitnis, fyrir hönd kröfuhafa, öðlast rétt til að eignast Íslandsbanka að öllu leyti án þess að leggja til frekari fjármuni og ríkið hefur enn fremur skuldbundið sig til að veita bankanum 25 milljarða lausafjárstuðning. Með þessu teljum við að bankinn sé að fullu fjármagnaður og að lausafé hans sé tryggt um fyrirsjáanlega framtíð," segir Árni. Óvíst er hvort kröfuhafar muni eignast Íslandsbanka að fullu strax, en kröfuhafar hafa kauprétt að allt að 90 prósentum af hlutafé bankans á næstu fimm árum. „Ég tel það mjög gott að það sé búið að fjármagna bankana," segir Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings. Hann segir að kröfuhafar bankans hafi verið þátttakendur í þessu ferli frá nóvember og þeir séu áhugasamir um að eignast banka sem sé í góðum rekstri. Eggert Þór Ólason, yfirlögfræðingur Landsbankans, segir að verðmat eigna bankans hafi gengið vel. Verðmatið sé ákaflega mikilvægt í tilfelli Landsbankans þar sem uppgjör milli gamla og nýja bankans sé með öðru móti en í tilfelli Kaupþings og Glitnis. -bþa
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Sjá meira