Enski boltinn

Malouda framlengdi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Florent Malouda.
Florent Malouda. Nordic Photos/Getty Images

Franski vængmaðurinn Florent Malouda hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Chelsea. Malouda átti aðeins tólf mánuði eftir af gamla samningnum.

„Ég verð hjá Chelsea næstu þrjú árin. Ég hafði ýmsa möguleika í stöðunni og þið getið sagt heiminum að ég sé ánægður hjá Chelsea og muni ekki fara neitt," sagði Malouda við fjölmiðla í Guyana þar sem hann er fæddur.

„Ég vildi geyma þessa frétt handa ykkur. Nú er það ykkar að bera heiminum tíðindin."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×