Fótbolti

Bafetimbi Gomis féll í yfirlið á landsliðsæfingu Frakka (myndband)

Ómar Þorgeirsson skrifar
Landsliðsmarkvörðuinn Cedric Carrasso kallar á hjálp eftir að Bafetimbi Gomis féll í yfirlið.
Landsliðsmarkvörðuinn Cedric Carrasso kallar á hjálp eftir að Bafetimbi Gomis féll í yfirlið. Nordic photos/AFP

Það varð uppi fótur og fit á landsliðsæfingu Frakka í gær þegar framherjinn Bafetimbi Gomis, sem leikur með Lyon, féll í yfirlið á miðjum vellinum.

Æfingin var opin almenningi og myndband náðist af viðbrögðum eftir að atvikið átti sér stað. Hægt er að sjá myndbandið með því að smella hér.

Leikmaðurinn lá meðvitundarlaus um stund á vellinum á meðan leikmenn og þjálfarar franska landsliðsins stumruðu yfir honum og sjúkraliðar komu á vettvang til að aðstoða en þá tók kappinn við sér og var studdur inn til búningsherbergja.

Málið er litið sérstaklega alvarlegum augum þar sem þetta er í þriðja skiptið sem að líður yfir hinn 24 ára gamla Gomis síðan hann gekk í raðir Lyon í sumar og í annað skiptið á viku.

„Það er ekki hægt annað en að hafa miklar áhyggjur af þessu. Eitt skipti fær mann til þess að spyrja spurninga en þrjú skipti er grafalvarlegt mál," segir Jean-Michel Aulas, forseti Lyon, í samtali við franska fjölmiðla.

Til þess að finna hliðstæður í málinu þarf ekki að leita lengra en til Spánar þar sem Ruben de la Red, leikmaður Real Madrid, er enn óleikfær eftir að hafa fallið í yfirlið í bikarleik með félaginu fyrir ári síðan.

De la Red hefur gengist undir fjöldamargar skoðanir án þess þó að finna bót meina sinna og því jafnvel búist við því að ferill hans sé á enda. Þessi mál voru sérstaklega tekin til skoðunar á Spáni eftir að Antonio Puerta dó þremur dögum eftir að hníga niður í leik með Sevilla í byrjun keppnistímabilsins 2007-2008.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×