Uppsagnir og niðurskurður fram undan 18. ágúst 2009 05:45 Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar.
Innan ráðuneytanna er unnið að tillögum um hvernig skorið verður niður í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Stefnt er að því að ná inn tekjum eða skera niður fyrir um 56 milljarða árið 2010. Hugmyndir voru uppi um að þingið hefði sterka aðkomu að fjárlagagerðinni, en nú er stefnt að því að slíta þingi að lokinni afgreiðslu á ríkisábyrgð vegna Icesave. Þing kemur ekki saman aftur fyrr en í október og þá verður fjárlagafrumvarpið lagt fram. Þá verður einnig lagt fram frumvarp til fjáraukalaga, en stoppa á í 22 milljarða gat með því. Fjárlaganefnd vann í sumar ramma fyrir fjárlagavinnuna og segir Guðbjartur Hannesson, formaður hennar, að þar hafi forsendur verið unnar fyrir árið 2010. Samkvæmt forskriftinni á að skera niður um fimm prósent í velferðarþjónustu, sjö prósent í menntastofnunum og tíu prósent í stjórnsýslu- og eftirlitsstofnunum. Málið er þó ekki svo einfalt og til dæmis verður skorið niður um allt að tíu prósent í ýmsum stofnunum heilbrigðisráðuneytisins. Alls nemur niðurskurður þar rúmlega sex prósentum og er nokkur urgur innan heilbrigðisgeirans. Undirstofnanir ráðuneyta hafa unnið að tillögum um hvar megi skera niður. Ljóst er að segja verður upp starfsfólki; hve mörgum kemur í ljós í október. Málið hefur ekki verið rætt í ríkisstjórn síðan í júní. Guðbjartur segir að fjárlaganefnd muni fylgjast með fjárlagagerðinni nú. „Við munum kíkja yfir öxlina á þeim."- kóp
Mest lesið Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Halldór Blöndal borinn til grafar Innlent Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Innlent Fleiri fréttir Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Fylgi stjórnarflokkanna dalar Föðurnum í Suður-Afríku enn haldið sofandi Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Sjá meira