Innlent

GSM á Íslandi 15 ára í dag

Mynd/GVA

Í dag eru 15 ár frá því að Póstur og Sími tók GSM kerfið í notkun hér á landi í fyrsta sinn og um leið hófst bylting í fjarskiptamálum Íslendinga. Virkum GSM númerum hefur heldur betur fjölgað síðastliðin 15 ár. Fyrsta árið voru þau rúmlega 2100 en í dag eru á fjórða hundrað þúsund virk númer á Íslandi.

Það var Ólafur Tómasson, þáverandi póst- og símamálastjóri, sem tók farsímakerfið formlega í notkun með því að hringja í Halldór Blöndal, þáverandi samgönguráðherra, sem var staddur á Akureyri.

Fram kemur í tilkynningu frá Símanum að fyrsta árið voru 2120 GSM númer verið virk og ári seinna voru þau 9375. Í dag eru um það bil 330 þúsund virk númer hjá öllum fjarskiptafyrirtækjum samanlagt.

Fyrirsagnir sem mátti sjá í dagblöðum árið 1994:

- Laufléttur vasasími og ekki hægt að hlera

- Opnað fyrir GSM-persónusímann 16. ágúst

- Vel nothæft í skyrtuvasa

- Með opnun GSM kerfisins markar Póstur og sími þáttaskil í fjarskiptum og stigið er stórt skref með tengingu við alþjóðlegt farsímakerfi sem er mjög fullkomið tæknilega , úr auglýsingu frá Pósti og síma.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×